Anorak No. 8

Þessi anorak er gerður til þess að endast. No. 8 jakkinn tilheyrir Numbers línunni frá Fjällräven. Sú lína er framleidd í minna upplagi og er mjög vönduð.

Þessi jakki er mjög einkennandi fyrir Fjällräven. Hann hefur lítið breyst í gegnum árin og er enn jafn flottur. Anorak No. 8 var hannaður til þess að standast erfiðar aðstæður á fjöllum og í skóglendi allt árið. Hettan er stór og stillanleg með deri. Á hliðunum eru langir rennilásar til þess að lofta í hlýrra veðri. Stór kengúruvasi að framan. Anorakkurinn er gerður úr sterku vind og vatnsþolnu G-1000 Eco efni úr endurunnu polyester og lífrænni bómull. Allt efni er valið með tilliti til þess að lágmarka áhrifin á umhverfið.


Size S
Color Laurel Green