

Angantíra - Krambúðarilman
6.900 kr
Krambúðarilman
Kassar af sítrusávöxtum, nýkomnir inn úr fersku sumarregni. Beiskur börkur í loftinu, greipaldins og sítrónu. Það skrjáfar í umbúðum. Nasavængirnir spennast upp við ilm af kýprusviði. Allt er nýtt og framandi í ljúfri angan af ilmrót og varablómum.
Angantíru kertin eru einstaklega náttúruleg og hrein kerti án aukaafurða olíuiðnaðarins. Kertin eru gerð úr sojavaxi og bómullarþræði og eru framleidd í Grasse í Frakklandi, höfuðstað ilmsins í Evrópu. Kertin voru áður seld í verslunum Geysis sem hefur nú verið lokað.
Kertin eru 200 ml og brennslutími er um 35 tímar. Við mælum með því að klippa kveikinn í hvert skipti til þess að kertið brenni jafnar niður.
Ef þú kaupir tvö kerti er þriðja kertið frítt. Afslátturinn birtist í körfunni sjálfkrafa.