Angantíra - Hátíðarilman

Hátíðarilman

Hátíðin lifnar í loganum. Gleðin tendrast með mildum eimi af Síberíugreni og viðarkvoðu. Fyrir vit þér leggur angan af mandarínuberki og safaríkum aldinbátum. Borðin eru dúkuð, og eftirvænting í loftinu með ljúfri sítrusilman og appelsínum í bland við sykurgljáða ávexti.

Angantíru kertin eru einstaklega náttúruleg og hrein kerti án aukaafurða olíuiðnaðarins. Kertin eru gerð úr sojavaxi og bómullarþði. Kertin eru framleidd í Grasse í Frakklandi, höfuðstað ilmsins í Evrópu. Kertin voru áður seld í verslunum Geysis sem hefur nú verið lokað.

Kertin eru 200 ml og brennslutími er um 35 tímar. Við mælum með því að klippa kveikinn í hvert skipti til þess að kertið brenni jafnar niður.

Ef þú kaupir tvö kerti er þriðja kertið frítt. Afslátturinn birtist í körfunni sjálfkrafa.

Size 200 ml
Color Hátíðarilman